Klúbburinn og Assi
Klúbburinn

27. júní 2007 | Loksins uppfærsla

Svona er þetta, maður tilkynnir nýja og betrumbætta heimasíðu og setur svo ekkert inn á hana... jæja, lesendur hafa a.m.k. getað haft nóg að gera við að skoða myndaalbúmið okkar, nóg af myndum þar ;)

En nú er sem sagt loks búið að uppfæra síðuna. Komnar eru myndir af okkur undir "Meðlimir" og einnig lýsing á síðustu árshátíð undir...tja hvað haldið þið... "Árshátíðir" :)

Vonandi meira á næstunni, en þetta ætti að kæta ykkur í bili :)

Kv. Sigurrós 



27. maí 2007 | Ný og endurbætt heimasíða!

Það er eiginlega skandall að Klúbburinn og Assi hafi hingað til ekki verið með almennilega heimasíðu. Við vorum jú með síðu en hún var alveg hálftóm og ekkert verið sett þar inn síðan...ja... ég man ekki einu sinni hvenær það kom síðast efni inn á hana!

Nú er síðan lifnuð við og verður stútfull af skemmtilegu efni! :)

Kv.
Sigurrós

Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!